28.07.2020
Gary Martin skoraði þrennu fyrir ÍBV er liðið lagði Þrótt að velli í Lengjudeild karla í gær á Hásteinsvelli.
ÍBV komst yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Martin skoraði með það sem átti að vera fyrirgjöf.
Þróttarar voru inn í leiknum alveg fram á 85. mínútu en þá skoraði Gary sitt annað mark. Hann fullkomnaði svo þrennuna í uppbótartímanum.
Lokatölur 3-0 fyrir ÍBV sem fer á toppinn í Lengjudeildinni. Þróttur er í næst neðsta sæti með aðeins eitt stig eftir átta leiki. Liðið er búið að skora þrjú mörk í fyrstu átta leikjum sínum.