Laugardagur 17. október 2026

Þórunn Sveinsdóttir VE kveður

Það voru stór tímamót í útgerðarsögu Vestmannaeyja í gær, sunnudaginn 22. mars 2026, þegar Þórunn Sveinsdóttir VE 401 lagði í hann áleiðis til Færeyja, þar sem skipið verður afhent nýjum eigendum, Loðnuvinnslunni hf. á Fáskrúðsfirði.

Við komuna til Færeyja fer skipið í slipp og verður þá strax afhent Loðnuvinnslunni. Til stendur að taka upp gír skipsins sem mun jafnframt fá nafnið Ljósafell SU 70.

Þórunn Sveinsdóttir VE hefur verið hluti af flota VSV í tæp 3 ár eða frá árinu2023, þegar VSV keypti Útgerðarfélagið Ós ehf. Skipið hefur í alla staði reynst vel og skilað góðum afla. Auk venjulegra veiða, hefur Þórunn sinnt rannsóknarverkefnum fyrir Hafrannsóknarstofnun, bæði að hausti og vori.

Útgerðarfélagið Ós ehf var stofnað árið 1969 af feðgunum Óskari Matthíassyni og Sigurjóni Óskarssyni og fjölskyldum þeirra. Útgerðarsaga þeirra er hins vegar talsvert lengri og nær aftur til ársins 1946, þegar Óskar Matthíasson keypti fyrsta bát sinn, Nönnu VE 300.

Útgerð fyrstu Þórunnar Sveinsdóttur VE, sem var vertíðabátur, hófst árið 1971 þegar hún kom nýsmíðuð frá Stálvík í Garðabæ. Árið 1991 kom önnur nýsmíði Ós til Eyja, skuttogari smíðaður á Akureyri, sem bæði var gerður út á sjófrystingu og ísfisk. Þriðja skipið, sem nú kveður Eyjaflotann var svo smíðað fyrir Ós árið 2010 í Danmörku, öflugt og nútímalegt skip sem enn stenst samanburð við nýrri skip.

Útgerðar- og skipstjórnarsaga Sigurjóns Óskarssonar er einstök saga velgengni og gæfu. Sigurjón aflaði ávallt vel og var ellefu sinnum aflahæstur á vetrarvertíð í Vestmannaeyjum. En gæfa hans felst þó jafnvel ennfremur í því að hafa á ferli sínum bjargað áhöfnum 4 skipa, alls 27 mönnum.

Það er eftirsjá að þessu góða skipi en um leið er gott að vita til þess að það verður í góðum höndum hjá þeim Fáskrúðsfirðingum.

Vinnslustöðin óskar Loðnuvinnslunni til hamingju með skipið og megi gæfan fylgja því hér eftir sem hingað til!

Frétt frá heimasíðu Vinnslustöðvarinnar og myndir. 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search