Laugardagur 30. september 2023
Covid-19

Þór­ólfur: ekki hægt að mæla með að rýmka opnunartíma skemmtistaða í bili

29.06.2020

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að sökum fjölgunar kórónuveirusmita á landinu síðustu daga sé ekki rétt að hækka viðmið samkomubanns úr fimm hundruð í tvö þúsund um sinn. Þá sé enn fremur ekki hægt að mæla með að rýmka opnunartíma skemmtistaða í bili.

Þetta kom fram í máli Þórólfs á upplýsingafundi almannavarna vegna kórónuveirunnar sem hófst klukkan 14.

Í síðustu viku sagði Þórólfur að hann hugðist leggja til að við heilbrigðisráðherra að fjöldamörk samkomubanns yrðu næst hækkuð úr fimm hundruð í tvö þúsund manns mánudaginn 13. júlí næstkomandi. Á þeim fundi sagði hann einnig að til skoðunar væri að rýmka opnunartíma vínveitingastaða en þeim hefur síðustu vikur verið gert að loka klukkan 23. Nú segir sóttvarnalæknir hins vegar að beðið verði með nákvæmar dagsetningar hvað þetta varðar.

Hafa slakað „mjög, mjög“ á smitvörnum

Þórólfur sagði greinilegt sé að fólk hafi slakað „mjög, mjög“ mikið á smitvörnum undanfarið um leið og hann brýndi fyrir fólki að huga að hreinlæti. Það geti búið til kjöraðstæður fyrir veiruna að ná sér á strik aftur.

Sóttvarnalæknir hvatti almenning til að taka sig á í almennum smitvörnum og virða prédikanir yfirvalda. Það yrði töluvert áfall ef herða þyrfti takmarkanir frekar eftir þær fórnir sem hafa verið færðar á undanförnum mánuðum.

Gætu þurft að bakka og fara í harðari aðgerðir

Þórólfur segir að ef fleiri hópsýkingar koma upp í tengslum við samkomur gætu yfirvöld þurft að bakka og fara í harðari aðgerðir. 

Því brýni yfirvöld fyrir almeningi að fylgja smitvörnum áfram. Ekki hafi þó fleiri smit komið upp en þau fjögur sem hafa nú greinst og það sé ánægjulegt.

visir.is greindi frá

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is