Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinni partinn í dag, þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna ölduhæðar og erfiðra aðstæðna í Landeyjahöfn.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00.
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45.
Herjólfur siglir einnig til Þorlákshafnar á morgun 2.febrúar.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45
Þeir farþegar sem áttu bókað á þessum tímasetningum í Landeyjahöfn hafa verið færðir sjálfkrafa milli hafna, aðrir þurfa að hafa samband við afgreiðslu okkur til þess að láta færa bókun sína.
Ef breyting verður á áætlun þá gefum við það út um leið og það liggur fyrir.
Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar, eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað, það er að segja lak, kodda og sæng/teppi.
Einnig langar okkur til þess að benda farþegum okkar á að á þessum árstíma er alltaf hætta færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.

