Í tilkynningu frá Herjólfi segir:
Þar sem ófært er til siglinga til Landeyjahafnar vegna veðurs siglir Herjólfur til Þorlákshafnar a.m.k fyrri part dags, samkvæmt eftirfarandi áætlun.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl 07:00
Brottför frá Þorlákshöfn kl 10:45
Þeir farþegar sem áttu bókað í aðrar ferðir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við afgreiðslu í síma 4812800.
Hvað varðar siglingar seinni part dags er einnig útlit fyrir Þorlákshöfn en gefin verður út tilkynning fyrir kl 15:00 í dag.
–
Við viljum góðfúslega benda fólki á að þegar þetta tímabil gengur í garð þá er alltaf hætta á færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Við biðlum einnig til farþega okkar að virða grímuskylduna um borð í ferjunni sem og að huga vel að sóttvörnum.
Þeir farþegar sem ætla sér að nota gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eigin búnað og bera ábyrgð á sóttvörnum á sínu svæði.