Ég er að hugsa um að fara í sumarfrí í júlí og bregða mér austur á land.
Ég ætlaði að bóka far með Herjólfi upp á land og búin að útvega mér gistingu, þar sem ég ætla að heimsækja ættingja, en síðan vandaðist málið.
Ég get ekki bókað far með Herjólfi heim aftur þar sem að í vikunni fyrir Þjóðhátíð á ÍBV fráteknar allar ferðir með skipinu. Þetta þýðir það að ég kemst ekki heim til mín nema að kaupa miða á hátíðina okkar. Kannski á ég nú þegar miða í Dalinn, kannski ætla ég ekki í Dalinn, kannski á ég eftir að kaupa mér miða í Dalinn.
En hvað sem því líður þá finnst mér gjörsamlega út í hött að komast ekki heim til mín á þessum tíma af því að allar ferðir frá 26. júlí til 05. ágúst eru fráteknar fyrir ÍBV.
Ekki misskilja mig, ég held mikið upp á mitt íþróttafélag og styð mín lið. En það er algerlega fáránlegt að geta ekki notað þjóðveginn heim til mín. Það er síðan engin afsökun að segja að það eigi eftir að bæta við ferðum þannig að ég get örugglega komist heim til mín.
Þetta er svona svipað og ef eingöngu væri hægt að nota vegi til og frá Reykjavík 23. júní til 29. júní ef þú kaupir miða á Secret Solstice!
Með kærri kveðju
Þórína Baldursdóttir

