Leturstofan hefur opnað fyrir pantanir á þjóðhátíðarpeysum í ár
Nú er Lind að hefja áttunda árið í þjóðhátíðarpeysufjörinu. Í ár verðum við með svartar heilar hettupeysur í stærðunum: 5/6 – 7/8 – 9/11 – 12/13 – S – M.
Peysan kostar 9.900 kr. óháð stærð og innifalið í því er peysa, þjóðhátíðarmerki, nafn og val um skrautmerkingu.
Hægt er að velja ýmsar aukamerkingar í alls konar litum líkt og við höfum boðið upp á undanfarin ár.
Hvetjum fólk til að panta sem fyrst því takmarkað magn verður í boði.
Hægt er að panta með því að senda á netfangið leturstofan@leturstofan.is eða hringja í síma 481 1161 / 6947999 (Lind)
Hægt verður að koma á Leturstofuna frá og með þriðjudeginum 13. júlí og máta. Leturstofan er á Strandvegi 47.



