Höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja 2022 er Klara Elias söngkona og lagahöfundur. Lagið heitir Eyjanótt. Sem hún samdi með Ölmu Guðmundsdóttur en James Wong sá um upptökustjórn ásamt Klöru.
„Það skipti mig máli að ná að fanga nostalgíuna sem við upplifum þegar sumarið kemur aftur og fiðringinn í magann sem maður fær þegar maður labbar inn í dalinn í Vestmannaeyjum,“ segir hún um lagið.
Aðeins einu sinni áður hefur hið opinbera þjóðhátíðarlag verið samið og flutt af konu og var það lagið og var það lagið Sjáumst þar eftir Röggu Gísla árið 2017.
Klara, sem heitir fullu nafni Klara Ósk Elíasdóttir, hefur starfað sem söngkona síðan í menntaskóla og flutti aftur heim til Íslands í heimsfaraldrinum eftir að búa og starfa í Los Angeles í nokkur ár.

