Miðvikudagur 6. desember 2023
Gunnar Ingi

Þjóðhátíðarlagið frumflutt í morgun – myndband

Höfundur og flytjandi þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja árið 2021 er Hreimur Örn Heimisson. Lagið ber heitið „Göngum í takt“ og fjallar um eftirvæntinguna sem kraumar inni í manni þegar maður er að labba niður í dal, gegnum hliðið og heyrir drunurnar úr brekkunni þegar þúsundir fólks hafa þjappað sér saman og hátíðin er byrjuð.

Hreimur fékk Vigni Snæ Vigfússon með sér í að pródúsera lagið. Magni, sem söng með Hreimi árið 2001 í þjóðhátíðarlaginu Lífið er yndislegt, verður einnig með að þessu sinni ásamt Emblu Margréti, 16 ára dóttur Hreims, sem syngur einnig í laginu.

Fleiri koma að laginu. Benedikt Brynleifsson spilar á trommur, Matthías Stefánsson á fiðlu, Pálmi Sigurhjartarson á harmonikku og Árni Þór Guðjónsson, Steini Bjarka, Benedikt Brynleifs og Vignir Snær mynda kórinn.

Hér fyrir neðan má lesa yfir texta lagsins fyrir þá sem vilja byrja að leggja það á minnið fyrir hátíðina:

Allir í bátana yfir á eyjuna förum í ferðalag
Ég vona að ég hitti þig, hátt uppi í brekkunni
Við sitjum hlið við hlið.
 
Þegar eldar lýsa upp ský
Við erum komin saman á ný
Og þessi hátíð byrjar upp á nýtt
 
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum til minningar
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum til minningar
 
Við sitjum á sama stað, horfum á brennuna, fuðra upp í nóttna
Svo syngjum við söngvana, kannski missum við röddina
En öllum er sama um það
 
Og þega eldar lýsa upp ský
Við erum komin saman á ný
Þessi hátíð byrjar upp á nýtt
 
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum okkur til minningar
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum okkur til minningar
 
Við komum alltaf aftur, Herjólfsdalur heilsar okkur
Við tökum höndum saman
Við erum Þjóðhátíð!!!
Forsíðumynd: Gunnar Ingi

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is