Útgáfa Þjóðhátíðarblaðs Vestmannaeyja er í umsjá Leturstofunnar í ár og verður veglegt að vanda. Sölubörn munu ganga í hús og selja blaðið í vikunni fyrir Þjóðhátíð. Vinnsla blaðsins er á fullu þessa dagana og er komin langt á veg. Það er hins vegar ennþá séns ef þú og þitt fyrirtæki vill vera með.
Þjóðhátíðar Tígull
Þjóðhátíðar Tígull verður svo að sjálfsögðu á sínum stað og verður dreift í hvert hús korter í Þjóðhátíð. Í blaðinu verða allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi Þjóðhátíð og verður það því prentað í stærra upplagi en venjulega og dreift til gesta Þjóðhátíðar. Blaðið er því góður auglýsingakostur fyrir þá sem vilja ná til þjóhátíðargesta.
Sendu okkur línu á leturstofan@leturstofan.is eða heyrðu í okkur í síma 856 4250.

