Glæsilegt Þjóðhátíðarblað ÍBV er komið út og munu krakkar rölta í hús og selja blaðið líkt og hefur verið gert
Blaðið kostar 1.500 kr, endilega takið vel á móti duglegu krökkum sem mörg fara út fyrir þægindaramman og selja blaðið.
Í ár er blaðið að öllu leyti í umsjá Leturstofunnar sem sá bæði um ritstjórn, auglýsingasöfnun og umbrot blaðsins. Myndir Adda í London eru áberandi í blaðinu líkt og undanfarin ár. Við heyrðum í nokkrum tónlistarmönnum sem koma fram á hátíðinni í ár. Við yfirheyrum nokkra Eyjamenn um þeirra hefðir og venjur á þjóðhátíð. Heiðrum minningu Guðjóns Weihe sem á hvorki meira né minna en ljóð við átta Þjóðhátíðarlaganna. Við rifum upp marga skemmtilega búninga sem sést hafa í Dalnum, heyrum í sjálfboðaliðum og margt fleira.

