Fimmtudagur 8. október 2026

Þjóðhátíð er mikið konfekt fyrir augað

Ljósmyndarinn Bent Marinósson tók þessar frábæru myndir, hér og á forsíðunni, sem gefa okkur innsýn í líf brennupeyjanna á nýliðinni Þjóðhátíð. 

Við heyrðum aðeins í kappanum sem reyndist hafa sterk tengsl til Eyja. „Ég á góða vini hér í Eyjum sem mér þykir afar vænt um.   Ég hef alltaf haft sterkar taugar til Eyja.  Afi minn réri til sjós í Eyjum ásamt ættmönnum hans úr Þykkvabæ.  Mér skilst að ég eigi eitthvað af ættingjum hér í Eyjum og væri gaman að kynnast þeim betur.“

Aðspurður um nýliðna hátið fannst honum hún afar vel heppnuð. „Það var greinilegt að fólk var orðið þyrst í Þjóðhátíð eftir tveggja ára hlé.  Þjóðhátíðarnefnd á heiður skilið fyrir góðan undirbúning og gott starf.  Eyjamenn eru engir líkir, á Þjóðhátíð eru allir vinir,“ sagði Bent í samtali við Tígul.

Kominn heim

Þetta var þó langt frá því fyrsta hátíð Bents. „Ég fann það strax á minni fyrstu Þjóðhátíð að ég væri kominn „heim“.  Ég hætti að telja eftir Þjóðhátíð númer 10 en ég býst við að þessi í ár sé sú fimmtánda hjá mér, ýmist sem gestur eða að vinna.  Mér finnst hver Þjóðhátíð ólík annari og alltaf jafn gaman, ég á mikið af góðum minningum af Þjóðhátíð,“ sagði Bent.

„Fyrir mig er Þjóðhátíð svo mikið konfekt fyrir augað að það er skemmtilegt myndefni hvert sem maður lítur.  Allt hefur sinn sjarma.  Mér finnst mannlífið einna skemmtilegast að mynda, það ríkir almennt svo góð stemming í Dalnum og allir glaðir.  Fyrir mig persónulega þá lengist Þjóðhátíðin með myndunum sem ég tek, við það að fara í gegnum myndirnar þá hálfpartinn endurupplifir maður stundirnar þegar myndirnar voru teknar.  Það er margföld gleði sem fellst í því,“ sagði Bent að lokum.

 

Hér eru nokkar ljósmyndir frá Bent.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search