Sex alþingismenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að innviðaráðherra undirbúi smíði eða kaup á nýrri ferju til siglinga milli Vestmannaeyja og lands. Ferjan myndi sigla samhliða Herjólfi yfir sumarið og vera varaferja fyrir bæði Herjólf og Breiðafjarðarferjuna Baldur. Ráðherra á að leggja áætlun um málið fyrir Alþingi í síðasta lagi á vorþingi 2027.
Karl Gauti Hjaltason er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Meðflutningsmenn eru Ingibjörg Davíðsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Ingveldur Anna Sigurðardóttir.
Fullbókað um helgar
Í greinargerð með tillögunni segir að Herjólfur sigli sjö ferðir á dag milli lands og Eyja á veturna og átta á sumrin, en það dugi ekki til. Eftirspurnin sé mest á sumrin. Þá myndist langir biðlistar og dæmi séu um að Eyjamenn komist ekki upp á land um helgar vegna þess að allar ferðir séu uppbókaðar.
Flutningsmenn segja að staðan versni enn þegar Herjólfur dettur út vegna viðhalds eða bilana. Þeir nefna skrúfubilun árið 2023. Þá þurfti að fá varaskip og semja við Icelandair um daglegt flug milli lands og Eyja í viku á meðan gert var við Herjólf í slipp. Í ár varð svo alvarleg vélarbilun í Herjólfi og Baldur var fenginn til að sigla til Eyja.
Breiðafjörður líður fyrir
Baldur siglir að jafnaði milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Flutningsmenn benda á að þegar hann er kallaður til Eyja raskist samgöngur um Breiðafjörð og byggðir beggja vegna fjarðarins finni fyrir því. Með sérstakri ferju sem gæti hlaupið í skarðið fyrir hvort skipið sem er myndi bilun á annarri leiðinni síður bitna á hinni.
Í tillögunni er einnig gert ráð fyrir að nýja ferjan geti siglt með Herjólfi til Þorlákshafnar á veturna, eftir aðstæðum og þörf. Hún þurfi að uppfylla kröfur um örugga og hagkvæma flutninga á farþegum og bílum og geta þjónað báðum ferjuleiðum.
Mynd: Herjólfur og Baldur. Heimir Hoffritz

