04.02.2020
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 23. janúar síðast liðin að bæjarráð tæki að sér verkefni bygginganefndar vegna undirbúnings og framkvæmda við viðbyggingu Hamarsskóla.
Byggingarnefndin hefur loka ákvörðunarvald varðandi verkefnið
Bæjarráð telur mikilvægt að sett verði saman verkefnastjórn sem heldur reglulega fundi og hefur ákvörðunarvald um framkvæmd verkefnisins, yfirfer stöðuskýrslur frá eftirlitsaðila, fær tilkynningar um frávik í verklegum framkvæmdum og svo framvegi. Sömuleiðis að skipaður verði verkefnastjóri sem er í samskiptum við hönnuði og verktaka á verkstað, tekur ákvarðanir um minniháttar frávik og upplýsir reglulega framkvæmda- og hafnarráð.
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í verkefnastjórn yfir verkinu:
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
Sigurbergur Ármannsson, fjármálastjóri
Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, sem jafnframt verður verkefnastjóri.
Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs
Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri GRV