Á bæjarráðsfundi í gær var tekið fyrir erindi Þekkingarsetursins áhuga á að annast framkvæmdir á um 175 fm. hluta hæðarinnar og annast í framhaldi útleigu á sérrými
Erindi ÞSV um aðkomu að framkvæmdum á 3. hæð Fiskiðjunnar:
Bæjarráð tók fyrir erindi framkvæmdastjórn Þekkingarseturs Vestmannaeyja um aðkomu setursins að framkvæmdum á hluta þriðju hæðar Fiskiðjuhússins. Þekkingarsetur Vestmannaeyja hefur áhuga á að annast framkvæmdir á um 175 fm. hluta hæðarinnar og annast í framhaldi útleigu á sérrými og hlutdeild í sameiginlegu rými auk þess að halda utan um rekstur og þjónustu við leigutaka á þriðju hæðinni.
Erindi framkvæmdastjórnar ÞSV um aðkomu að framkvæmdum á 3. hæð Fiskiðjunnar:
Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ræða formlega við Þekkingarsetur Vestmannaeyja um aðkomu setursins að framkvæmdum og útleigu á þriðju hæð Fiskiðjuhússins.

