,,Til hamingju Vestmannaeyjar og allt Ísland!“ Segir í færslu hjá The Brothers Brewery nú í morgunsárið.
Þeir eru komnir með leyfi til sölu á framleiðslustað.
,,Það er því búið að kveikja ljósin í kælinum og fylla á. Brakandi ferskur og kaldur bjór fæst nú í fyrsta sinn í paradís.
Opnum Ölstofuna á slaginu kl 14:00 og það er opið til 22:00, já við megum selja út allan þann tíma.“ segir að lokum

