Glænýr Tígull ilvolgur úr iðrum Stafrænu prentsmiðjunnar er á leiðinni frítt inn um lúgur heimila í Vestmannaeyjum. Í Tígli vikunnar kennir ýmissa grasa, Hver voru best í boltanum í sumar, eitthvað stórkostlegt gerðist í leikhúsinu, óvænt hrekkjavaka í FÍV og kótilettur í Höllinni. Og að sjálfsögðu eru hinir sívinsælu liðir, orðaþrautin og sudoku á sínum stað.
Þeir sem einhverra hluta vegna ekki fá blaðið heim geta lesið það með því að smella hér að neðan eða nálgast það í næstu verslun í Eyjum. Þá er einnig rétt að minna verslunareigendur á að jólin nálgast óðfluga og því ráð að setja sig í samband við okkur í Tígli til að tryggja sína auglýsingu inn á öll heimili í Eyjum.


