Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir, eigandi verslunarinnar Kubuneh var í skýjunum hversu vel gengur þegar við tókum tal af henni í vikunni.
„Kubuneh gengur alveg svakalega vel. Sem betur fer er alltaf að bætast í kúnnahópinn og ég er svo þakklát fyrir að fólk sé að gefa búðinni séns.“ Þóra Hrönn segir marga vera búna að dæma búðina fyrirfram þar sem hún selur notaðar vörur en eiga svo ekki til orð yfir hvað allt er snyrtilegt og fínt þegar inn er komið, búðin sjálf og allt sem er til sölu. „Sumarið var alveg sturlað og gaman að segja frá því að laugardagurinn á Þjóðhátíðinni var söluhæsti dagurinn frá opnun þá seldust 172 hlutir. Allt er talið sem selst þannig að ég veit að fyrsta árið seldust 12.186 hlutir og það sem af er þessu ári hafa selst 11.024 hlutir. Frá því að Kubuneh opnar hafa því 23.210 hlutir fengið framhaldslíf hjá okkur.“
Þóra segir dagana hjá sér mismunandi allt eftir því hversu mikla aðstoð hún fær frá sjálboðaliðum með búðina. „Það er frábært þegar við Þórunn getum tekið morgnana í Kubuneh því þá er vinnufriður en búðin opnar ekki fyrr en klukkan 13. Ef vaktirnar eftir hádegi eru mannaðar þá sinni ég útgerðarvinnunni eftir hádegi. Ef ég þarf að vera í búðinni eftir hádegi þá sinni ég hinni vinnunni á morgnana. En það sem ég geri alltaf á mánudags og föstudagsmorgnum er að fara með Þórunni Jóns að losa úr Rauða Kross gámunum. Í leiðinni losa ég mig við það sem hefur komið í Kubuneh en þykir ekki söluvænlegt.
Ég myndi halda að 20% af því sem kemur í Kubuneh fari í sölu. Magnið sem kemur inn er svo gríðarlegt að það gefur auga leið að það er ekki hægt að selja það allt. Við veljum bara það allra besta. Við fáum rosalega mikið af fatnaði sem hefur aldrei verið notaður og er enn með miðanum og því finnst mér oft erfitt að segja að við seljum bara notuð föt því það er alls ekki þannig.“
Til að koma í veg fyrir að flíkur sem ekki eru söluvara fari í sölu fara þrjár mismundandi manneskjur yfir hverja einustu flík. „Það sem kemst ekki í gegnum þessa skoðun fer í Rauða Krossinn en við erum líka í samstarfi við þrjár listakonur í Hvíta Húsinu sem fá hráefni hjá okkur, aðallega ull og leður. Við reynum eins og við getum að koma öllu í einhverja endurvinnslu og það er bara frábært ef það getur verið eitthvað hérna innanbæjar,“ sagði Þóra Hrönn og biðlar til fólks að koma bara með heil og hrein föt í Kubuneh. „Það er ágætt að hugsa bara myndi vinkona/vinur minn kaupa þetta. Við seljum ekki staka sokka, skítug föt, hnökraðar peysur o.s.frv. og ég er ekki að senda neitt af því sem kemur í lúguna til Gambíu en ef að því kemur þá mun ég kalla eftir því.“
Ásamt því að reka verslunina og eitt stykki útgerð rekur Þóra Hrönn einnig Heilsugæslu í Kubuneh. „Heilugæslan gengur vel, búðin gerir okkur kleift að gera þetta vel. Við erum búin að laga húsnæðið og allt í kring heilmikið.
Núna er hjúkrunarfræðingur frá okkur í ljósmóðurnámi. Við borgum námið hennar, uppihald og húsasleigu. Ég er búin að kaupa CRP mæli sem verður algjör bylting fyrir bæði starfsfólk og sjúklinga. Þessi mælir mælir á einfaldan hátt hvort sjúklingur sé með sýkingu og því hægt að meðhöndla sjúklinginn betur en áður. Með þessu eigum við að geta minnkað sýklalyfjanotkun heilmikið.
Það búa ca.2.000 manns í þorpinu Kubuneh en það eru 9 þorp þar í kring og þar búa um 10-12.000 manns og allt þetta fólk hefur aðgang að heilsugæslunni okkar,“ sagði Þóra Hrönn. Hún reynir einnig að fara reglulega út til Kubuneh ásamt því að fylgjast með úr fjarska. „Við erum að fara út núna 1. nóvember, með okkur fer heilsugæslulæknir, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og múrari sem mun fá það verkefni að steypa risa bílaplan og innkeyrslu fyrir sjúkrabílinn. Hann mun kenna strákunum okkar úti að gera hlutina eins og við gerum þá svo þeir endist þ.e. koma til þeirra þekkingu sem þeir geta svo nýtt sér áfram,“ sagði þessi kraftmikla kona að lokum.

