19.07.2020
Samkvæmt heimildarmanni Tíguls var um að ræða fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins sem sigldi inn til Eyja í hádeginu í dag. Skemmtiferðaskipið heitir Le Bellot, og er annað skemmtiferðaskipið sem kom til hingað til lands þetta sumarið.
Le Bellot er franskt skip sem býður upp á sjö daga lúxussiglingu hringinn í kringum Ísland.
Á forsíðumyndinni má sjá Lóðsinn fylgja farþegaskipinu til hafnar í hádeginu í dag.

