Handboltinn stelpur

Tékkar eru væntanlegir til Eyja í vikulokin

Báðar viðureignir ÍBV og Sokol Pisek í 16-liða úrslitum Evrópubikarkeppninni í handknattleik kvenna fara fram í Vestmannaeyjum. Þessu greinir handbolti.is frá.  Samkvæmt vef Handknattleikssambands Evrópu hefst fyrri leikurinn klukkan 15 á laugardaginn og sá síðari klukkan 13 daginn eftir.

Sokol er tékkneskt félagslið sem bænum Pisek. Liðið situr í sjötta sæti af 14 liðum í MOL-deildinni, sem er sameiginleg deildarkeppni Tékka og Slóvaka með 13 stig að loknum 12 leikjum, hefur unnið sex leiki, gert eitt jafntefli og tapað fimm leikjum.

Sokol Pisek er komið í undanúrslit tékknesku bikarkeppninni.

ÍBV hefur til þessa unnið tvö grísk félagslið á leið sinni í 16-liða úrslit Evrópubikarkeppninni. Fyrst lágu leikmenn PAOK í valnum eftir tvo leiki sem báðir fór fram í Þessalóníku. Í nóvember sló ÍBV Panorama í 32-liða úrslitum í tveimur leikjum sem háðir voru í Vestmannaeyjum.

Áður en að Evrópuleikjunum kemur þá tekur ÍBV á móti HK á miðvikudagskvöld í Vestmannaeyjum í fyrsta leik ársins í Olísdeild kvenna. Mjög þétt leikjadagskrá bíður ÍBV-liðsins í þessum mánuði vegna þess að nokkrum viðureignum í Olísdeildinni sem fram áttu að fara í desember varð að fresta vegna þátttöku Mariju Jovanovic á heimsmeistaramótinu á Spáni með serbenska landsliðinu.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is