Karlalið ÍBV spilaði gegn liði ÍA í dag í Bestu deildinni á útivelli. Fyrsta mark leiksins skoraði Kristian Lindberg á 32. mínútu eftir stoðsendingu frá Gísla Laxdal Unnarssyni.
Skagamenn fengu aukaspyrnu, boltanum komið á Gísla Laxdal sem keyrir inn í teiginn og á gott skot sem Guðjón ver út. Þar kemur Kristian Lindberg á ferðinni og klárar í netið. Staðan því 1-0 í hálfleik.
ÍBV jafnar metin í fyrstu sókn seinni hálfleiks en það var Andri Rúnar Bjarnason sem skoraði eftir stoðsendingu frá Arnari Breka Gunnarssyni.
Það var svo á 88. mínútu sem að Haukur Andri Haraldsson skorar fyrir ÍA eftir stoðsendingu inn í teig frá Árna Salvari Heimissyni.
Lokatölur því 2-1 fyrir ÍA.


