Tandoori kjúklingur
Hráefni:
1 kg kjúklingalæri
400 g grísk jógúrt
Safi úr lime
5-6 hvítlauksrif, pressuð
2 tsk kóríander
2 tsk turmeric
4 cm engifer, rifið
2-3 tsk chillíflögur
2 tsk kanill
2 tsk kardimommukrydd
4 msk tómatpúrra
3-4 tsk cumin (ath ekki kúmen)
4 tsk paprikukrydd
8 msk ólífuolía
Salt og pipar
Aðferð:
Blandið öllum hráefnunum fyrir marineringuna saman í skál og setjið kjúklinginn saman við.
Marinerið í kæli í að minnsta kosti klukkustund,
helst yfir nótt.
Setjið í ofnfast mót og eldið í 180°c heitum ofni í 30 mínútur. Stillið svo ofninn á grill og eldið í nokkrar mínútur til viðbótar eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og smá brúnaður.
Sætkartöfluklattar
Þessir klattar eru ljúffengir
og passa vel með kjúklingi eða
ýmisskonar grillkjöti.
Hráefni:
1 kúrbítur
1 stór sæt kartafla
1 egg
1/2 msk husk
1 dl rifinn parmesan
chiliflögur
salt & pipar
Aðferð:
Ofninn er hitaður í 225 gráður. Kúrbítur rifinn gróft og settur í sigti ásamt smá salti. Hrært dálítið saman og kreist létt til þess að mestur vökvinn farin úr. Sæta kartaflan er skræld og rifin gróft. Rifinn kúrbítur, rifin sæt kartafla og rifinn parmesan ostur er blandað saman ásamt eggi, huski og kryddi. Mótað í lítil buff og þeim raðað á bökunarpappír á ofnplötu. Hitað í ofni þar til buffin hafa tekið fallegan lit og eru elduð í gegn.

