Takmörkunum á skólastarfi vegna COVID-19 var aflétt þann 12. febrúar síðasliðin með gildistöku nýrrar reglugerðar um samkomutakmarkanir. Breytingin felur í sér rýmkun á sóttvarnareglum, fjöldatakmörk verða 200 manns og heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
Þeir sem þegar eru í sóttkví þurfa ekki að mæta í sýnatöku til að losna. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar. Reglur um einangrun verða óbreyttar.
Reglur um þá sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.
Nýja reglugerðin um takmörkun á samkomum gildir til og með 25. febrúar.
Helstu breytingar á samkomutakmörkunum eru eftirfarandi:
- Skólar: Reglugerð um takmörkun á skólastarfi fellur brott. Þar með gilda almennar reglur um samkomutakmarkanir í skólum, þó með undantekningum til rýmkunar.
- Skólaskemmtanir: Heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
- Íþróttakeppnir og -æfingar: Keppnir og æfingar heimilar með 200 manns í hólfi.
- Hreyfing: Sund- og líkamsræktarstöðvum sem og skíðasvæðum er heimilt að taka á móti gestum með fullum afköstum.
- Almennar fjöldatakmarkanir: Fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla brott.
- Grímunotkun: Aðeins verður skylt að bera grímu ef ekki er hægt að viðhafa 1 metra reglu.
- Fjölmennir viðburðir: Heimilt verður að halda 1.000 manna viðburði að því tilskildu að allir sitji í sæti og beri grímu. Heimilt er að halda hlé á viðburðum og selja veitingar án takmarkana.
Nánari upplýsingar:

