Takmörkun á skólastarfi frá 3. nóvember

01.11.2020

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða tekur gildi 3. nóvember.

Sett er það markmið að sem minnst röskun verði á skólastarfi og að starf á leikskólastigi og á fyrsta stigi grunnskóla verði óskert.

Að ráði sóttvarnalæknis verður reglu um grímuskyldu breytt þannig að hún eigi ekki við um börn fædd 2011 og síðar.

Reglugerðin byggist á tillögum sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaaðgerðir til að sporna við útbreiðslu COVID-19 faraldursins og er unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Hún tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla, framhaldsfræðslu og háskóla, hvort sem um ræðir opinbera eða einkarekna skóla. Reglugerðin tekur einnig til annarrar starfsemi, svo sem frístundaheimila og félagsmiðstöðva, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs.

Leikskólar

 

  • Ekki skulu vera fleiri en 50 leikskólabörn í hverju rými. Leikskólabörn eru undanþegin 2 metra nálægðartakmörkun. Starfsfólk skal halda 2 metra nálægðartakmörkunum sín á milli og sé það ekki hægt skal starfsfólk nota andlitsgrímur. Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er óheimilt, jafnt innan og utan leikskóla.

Grunnskólar

  • Fyrsta skólastigþ.e. 1.–4. bekkur: Nemendur eru undanþegnir 2 metra nálægðartakmörkun og þurfa ekki að nota andlitsgrímur. Alls mega 50 nemendur vera í sama rými. Sömu reglur gilda um frístundaheimili fyrir nemendur í 1.–4. bekk.
  • 5.–10. bekkur: Nemendur mega að hámarki vera 25 í hverju rými. Um þá gilda 2 metra nálægðartakmörk og ef ekki er hægt að uppfylla þau skulu nemendurnir nota grímu. Starfsfólk skal jafnframt halda 2 metra regluna og nota grímu sé það ekki mögulegt.
  • Starfsfólk grunnskóla: Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými en starfsmönnum er heimilt að fara á milli hópa. Starfsmenn skulu virða 2 metra regluna sín á milli og gagnvart nemendum í 5.–10. bekk. Sé það ekki hægt skulu þeir bera grímur.
  • Fjöldamörk og blöndun hópa: Halda skal sömu hópaskiptingu nemenda í grunnskólastarfi og á frístundaheimilum þannig að ekki verði blöndun milli nemendahópa. Í sameiginlegum rýmum skóla er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkum og reglu um blöndun hópa, að því gefnu að nemendur í 5.–10. bekk og starfsfólk noti grímu.
  • Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf, þ.m.t. starf félagsmiðstöðva, barna á grunnskólaaldri er óheimilt.

Fyrsta námsár á framhaldsskólastigi

  • Í skylduáföngum á framhaldsskólastigi sem teknir eru á fyrsta námsári er heimilt að hafa allt að 25 einstaklinga í rými, að því gefnu að hægt sé að halda 2 metra nálægðartakmörkum.

Framhaldsskólastig, háskólar og tónlistarskólar

  • Almennt gildir regla um 10 manna fjöldatakmörk, 2 metra nálægðarmörk og grímuskylda í háskólum og tónlistarskólum og einnig á framhaldsskólastigi, að undanskildum áföngum á fyrsta námsári. Blöndun nemenda milli hópa í kennslu er ekki heimil, en starfsfólki og kennurum er heimilt að fara á milli hópa. Í sameiginlegum rýmum skóla er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa, að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur.
  • Heimilt er að halda úti verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi með sömu fjöldatakmörkun þótt ekki sé hægt að framfylgja 2 metra nálægðarmörkun en nemendum og kennurum er þá skylt að nota andlitsgrímur.

Reglugerð um takmörkun á skólahaldi vegna farsóttar

Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðs Íslands.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is