Í ljósi fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu breytast heimsóknarreglur á HSU frá og með 12. nóvember 2021
Breytingarnar fela í sér takmörkun á komum gesta og eru heimsóknir til sjúklinga á HSU ekki heimilar nema með sérstöku leyfi forsvarsmanna viðkomandi deildar.
Heimsóknir á hjúkrunardeildir eru heimilaðar í samráði við starfsfólk deildar.
Grímuskylda er í gildi hjá heimsóknargestum á meðan heimsókn varir.
Grímuskylda er á HSU. Allir 6 ára og eldri bera maska í viðtali, rannsóknum og öðrum erindagjörðum inni á stofnanir HSU. ATH að buff er ekki tekið gilt.
Tilkynning frá HSU Vestmannaeyjum:
ATH! Vegna fjölgunar á covid smitum þurfum við að loka fyrir heimsóknir á sjúkradeildina, nema með undantekningum.
Hjúkrunardeildin leyfir einn gest á dag.
Það er MASKASKYLDA!
Og munum að við erum ÖLL almannavarnir!