Mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað 50 milljónum kr. til æskulýðsfélaga sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni.
Styrkir eru veittir vegna tekjutaps þar sem hætt hefur verið við viðburði, mót eða félög hafa þurft að skerða starfsemi vegna áhrifa COVID-19.
„Æskulýðsstarf hefur ótvírætt forvarna- og menntunargildi og það er markmið okkar að tryggja jöfn tækifæri til þátttöku að slíku starfi. Þar starfa börn og ungmenni í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þau sjálf meta að verðleikum. Það er mikilvægt veganesti fyrir þau og samfélagið allt,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Styrkirnir skiptast svo:
- Sumarbúðir KFUK Vindáshlíð 1.500.000
- Núll prósent hreyfingin 200.000
- Taflfélag Vestmannaeyja 200.000
- AFS á Íslandi 7.000.000
- KFUM og KFUM 2.500.000
- Skógarmenn KFUM 3.000.000
- Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni 3.000.000
- Bandalag íslenskra skáta 5.000.000
- KFUM og KFUK Akureyri 350.000
- Taflfélag Reykjavíkur 1.520.000
- Samfés 4.000.000
- Ungmennafélag Íslands /ungmennabúðirnar á Laugum 5.000.000
- Landssamband ungmennafélaga 4.700.000
- JCI Íslands 250.000
- Víkingaklúbburinn/skákfélag 100.000
- Stúdentaráð Háskóla Íslands 300.000
- Veraldarvinir 2.500.000
- Ungir umhverfissinnar 300.000
- Skátafélagið Skjöldungar 600.000
- Landssamtökin Þroskahjálp 700.000
- Ölver sumarbúðir 1.500.000
- Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF 4.000.000
- Samtök ungra bænda 200.000
- Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) 1.000.000
- Skátafélagið Kópar 500.000
- JCI Reykjavík 80.000

