Starfsfólk Póstsins í Vestmannaeyjum vilja koma skilaboðum til ykkar !
Við viljum láta ykkur vita að því miður urðu tafir og verða, á afhendingu á heimkeyrslupökkum, sem átti að keyra út í gær og í dag, vegna manneklu sem orsakaðist af hugsanlegum Covid-19 smitum hjá starfsmönnum í útkeyrslu hér í eyjum.
Okkur þykir þetta leitt en við munum leggja kapp á að koma öllum sendingum eins fljótt og við getum til ykkar.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og takk fyrir skilninginn.
Bestu kveðjur starfsfólk Póstsins í Vestmannaeyjum.


