Miðvikudagur 7. júní 2023
Tannlæknir

Tæplega 400 milljónum varið til að lækka greiðsluþátttöku vegna tannlæknaþjónustu

Greiðsluþátttaka lífeyrisþega vegna tannlæknaþjónustu lækkaði 1. janúar síðastliðinn og sömuleiðis greiðsluþátttaka almennings vegna nauðsynlegra tannlækninga af völdum meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin. Áætlað er að fjármunir sem varið verður til þessara lækkana á greiðsluþátttöku nemi um 380 milljónum króna á ársgrundvelli.

Lækkun greiðsluþátttöku lífeyrisþega fyrir tannlækningar

Frá og með 1. janúar sl. eykst greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í almennum tannlæknakostnaði öryrkja og aldraðra úr 57% í 63% og kostnaður þeirra lækkar að sama skapi. Áætlaður útgjaldaauki sjúkratrygginga vegna þessa nemur um 200 milljónum króna á ársgrundvelli. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin.

Lækkun greiðsluþátttöku almennings vegna sértækra tannvandamála

Þann 15. júlí síðastliðinn tók gildi rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna um nauðsynlegar tannlækningar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma samkvæmt reglugerð nr. 451/2013. Fram að því höfðu endurgreiðslur þeirra sem áttu rétt á þeim miðast við gjaldskrá sem ekki hafði verið uppfærð til verðlags frá árinu 2014. Með nýrri gjaldskrá samhliða rammasamningnum hækkaði greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði allra sem áttu rétt á endurgreiðslu. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna nauðsynlegra tannlækninga aldraðra og öryrkja hefur numið 80% en 50% hjá öðrum.

Frá og með 1. janúar hækkar greiðsluþátttaka sjúkratrygginga hjá síðarnefnda hópnum í 80% til jafns við lífeyrisþega. Áætlaður útgjaldaauki sjúkratrygginga vegna þessa nemur 180 milljónum króna á ársgrundvelli.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is