Systkinaafsláttur nær nú einnig til skráningardaga leikskóla
Fræðsluráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti á fundi sínum 3. september að systkinaafsláttur vegna leikskólagjalda nái framvegis einnig til gjaldtöku vegna skráningardaga. Markmiðið er að koma til móts við fjölskyldur sem eiga fleiri en eitt barn í leikskóla.
Á fundinum var jafnframt farið yfir tillögur stýrihóps sem hefur það hlutverk að meta reynsluna af breytingum á gjaldskrá leikskóla sem tóku gildi um síðustu áramót.
Reynslan af nýju gjaldskránni metin
Stýrihópurinn fundaði 2. september og fór yfir hvernig breytingarnar á gjaldskrá leikskólanna hafa reynst í framkvæmd. Rætt var um ábendingar sem borist hafa, hvað hafi gengið vel frá innleiðingu breytinganna og hvar tækifæri séu til frekari úrbóta.
Formaður fræðsluráðs lagði þar fram tillögu um að systkinaafsláttur yrði einnig veittur af gjaldi vegna skráningardaga leikskóla. Samkvæmt gildandi fyrirkomulagi hefur verið eitt gjald fyrir skráningardaga, óháð fjölda systkina.
Fræðsluráð samþykkti tillöguna og mun systkinaafsláttur því framvegis einnig ná til skráningardaga. Með breytingunni er ætlunin að draga úr kostnaði fjölskyldna með fleiri en eitt barn í leikskóla og stuðla að auknu jafnræði og samræmi í gjaldtöku.
Foreldrar spurðir um vetrarleyfið
Stýrihópurinn lagði jafnframt til að skólaskrifstofa geri könnun meðal foreldra barna í leik- og grunnskólum Vestmannaeyjabæjar um reynslu þeirra af fyrirkomulagi vetrarleyfis.
Þá er lagt til að komið verði upp sérstökum „Spurt og svarað“ hluta á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar um nýju gjaldskrá leikskólanna. Markmiðið er að gera fyrirkomulagið skýrara fyrir foreldrum og draga úr þeim misskilningi sem gætti í upphafi innleiðingarinnar.
Allir leikskólar fá fulltrúa í stýrihópnum
Einnig var lagt til að leikskólastýru Sóla og aðstoðarleikskólastjóra Víkurinnar verði bætt við stýrihópinn. Með því eiga allir leikskólastjórar sveitarfélagsins fulltrúa í hópnum.
Fræðsluráð tók jákvætt í tillögur stýrihópsins og fól deildarstjóra fræðslu- og uppeldismála að fylgja þeim eftir.
Stýrihópurinn mun funda aftur fljótlega og halda áfram að meta reynsluna af breytingunum, þær ábendingar sem borist hafa og hvaða frekari úrbætur kunni að vera æskilegar.

