Föstudagur 16. október 2026

Sýslumaður annast könnun hjónavígsluskilyrða

Könnun hjónavígsluskilyrða mun einungis fara fram hjá sýslumanni, frá og með 1 september næstkomandi. Könnun hjónavígsluskilyrða, áður en hjónavígsla fer fram, verður nú ekki lengur á hendi presta eða forstöðumanna trú- og lífskoðunarfélaga og umboðsmanna þeirra og gildir einu hvort hjónaefni eiga lögheimili hér á landi eða ekki. Vígsluheimildir presta og forstöðumanna trú- og lífsskoðunarfélaga og umboðsmanna þeirra verða óbreyttar, þannig að hjónaefni geta áfram valið hver framkvæmir hjónavígsluna, en þau þurfa að leita til sýslumanns fyrst til þess að kanna hvort hjónavígsluskilyrði séu uppfyllt. Útgáfa könnunarvottorðs sýslumanns er forsenda þess að hjónavígsla megi fara fram.

Frá og með 1. september 2022 þurfa allir sem ætla að ganga í hjúskap hér á landi að óska eftir könnun á hjónavígsluskilyrðum hjá sýslumanni, nema könnun hafi þegar farið fram fyrir þann tíma og vottorðið er ekki eldra en 30 daga þegar hjónavígsla fer fram.

Á vefnum syslumenn.is eða á island.is/um-hjonaband er hægt að nálgast nánari upplýsingar og sérstakt eyðublað sem hjónaefni og svaramenn þurfa að fylla út. Eyðublaðið er síðan sent í tölvupósti ásamt fylgigögnum á netfangið gifting@syslumenn.is. Í framhaldinu fær fólk nánari leiðbeiningar um næstu skref. Mikilvægt er að senda beiðnina til sýslumanns með hæfilegum fyrirvara áður en hjónavígsla fer fram, en að jafnaði tekur um 5 virka daga að ljúka við könnun hjónavígsluskilyrða. Greiða þarf kr. 4.500 kr. fyrir vottorðið. Athugið að við greiðslur erlendis frá geta bæst þjónustugjöld banka.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search