Laugardagur 30. september 2023

Sýningarnar verða fram yfir næstu helgi

17.11.2020

Sýningar úr Ljósmynda- og Kvikmyndasafni Vestmannaeyja í verslunargluggum sem hófust á fimmtudaginn síðasta hafa svo sannarlega slegið í gegn. Og svo mjög að ákveðið er að halda þeim áfram fram yfir næstu helgi. 

Alla helgina mátti sjá fólk fyrir utan verslanir sem tóku þátt í þessu með söfnunum. Talsverðan tíma tekur að sjá allar myndirnar sem eru tíú mínútur að lengd hver syrpa. Kom fram beiðni um að þessu yrði haldið áfram og tóku verslunareigendum vel í það. Það gefst því áfram tækifæri til að kíkja inn um þann glugga í sögu Vestmannaeyja sem þarna opnast. 

 Kjörið tækifæri fyrir fólk að mæta á sýningar án þess að brjóta samskiptareglur.

 Verslanir sem taka þátt í verkefninu eru Litla Skvísubúðin, Geisli, Smart, Baldurshagi við Bárustíg, Flamingó, Póley, Brothers Brewery, Penninn, Miðstöðin, Leturstofan og Tölvun.

Er kaupmönnum og verslunarfólki þökkuð velvild og lipurð við að koma þessari útgáfu af Safnahelgi á koppinn.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is