Taktu rúntinn á Bröttugötuna
Það er tilvalið að taka taka ísrúnt í dag og kíkja við á Bröttugötuna. Þau Ása og Finnsi hafa sett upp listaverk eftir pabba Finns sem flest öll okkar hér í eyjum sem hafa gengið skólagönguna þekkja vel, en það er hann Finnur teiknikennari sem er maðurinn. Á fjörtíu ára afmæli gossins málaði hann nokkur verk og setti upp í garðinum hjá sér á Búhamrinum. En fyrir tveimur árum fluttu þau hjón og gáfu því syni og tengdadóttur verkið eða sýninguna.
Finnur málaði myndirnar á afganga af plötum sem hann átti, hann fangar á mynd þegar bátarnir eru að sigla frá Eyjum með eldgosið i bakgrunn.





