Tilkynning vegna covid sýna sem tekin voru mánudaginn 14 febrúar
Komið hefur í ljós að sýni sem tekin voru mánudaginn 14 febrúar skiluðu sér ekki á rannsóknarstofu veirufræðinnar í Reykjavík fyrr en 16 febrúar. Sýnin eru núna á leið í vinnslu og er svara að vænta í dag eða á morgun. Fólk þarf ekki að mæta í nýja sýnatöku og ef jákvætt þá er einangrun talin frá sýnatökudegi. Við hörmum þessa töf á niðurstöðum.
Kv. Heilsugæslan í Vestmannaeyjum
Sýnatökur um helgina
Áfram er mikið um covid smit og sýnatökur og verða sýnatökur á sunnudaginn kl 9:30 við heilsugæsluna.

