Ég held að allir hafi séð myndbandið af sykurpúða prófinu sem var lagt fyrir börn. Mjög fyndið og krúttlegt myndband. Þið sem hafið ekki séð það þá gengur það út á að börn koma inn í herbergi og fyrir framan þau er einn sykurpúði. Þau fá svo fyrirmælin um að þau mega borða hann núna eða bíða og þá fá þau einn til viðbótar. Það er að segja ef þau ná að halda að sér og borða ekki sykurpúðan. Myndbandið er mjög fyndið því börnin eru ein í herberginu ásamt sykurpúðanum, þau sýna allskonar takta og tilþrif til að standast prófið. Það er mikil freisting að borða ekki þennan sykurpúða, sem þau svo sannarlega mega borða. En það eru verðlaun fyrir þau sem bíða, annar sykurpúði örlítið seinna.
Ég er ekki að skrifa þetta því ég hef mikinn áhuga á sykurpúðum. Þó þeir séu góðir þá eru þeir ekki á toppnum þegar það kemur að nammi. Mér finnst þetta próf nefnilega minna mig á núverandi stöðu hjá ÍBV. Gervigras eða stækka Herjólfshöllina. Já, ég veit að þetta er ekki alveg svo einfalt. En það er víst í boði að fá gervigras núna, það var víst samþykkt og framkvæmdir fara fljótlega í gang. Það þýðir að miðað við framtíðarsýn ÍBV sem var samþykkt 30.09 2021 að stækkun á Herjólfshöllinni verði eftir 35 ár. Já 35 ár.
Ég verð þá 78 ára, það er að segja ef ég verð ennþá það heppin að vera á lífi. Börnin mín verða orðin 40, 46 og 48 ára. Þetta gerir mig leiðan og sorgmæddan. Og þá kemur að þessum sykurpúðum. Ég get fengið einn sykurpúða strax. Vissulega held ég að það sé gott að fá gervigras og það bætir vissulega vetraraðstöðuna, sérstaklega fyrir meistaraflokkana. Ég er ekkert á móti gervigrasi og hef enga tengingu við grasið á Hásteinsvelli. En ef við bíðum aðeins þá er kannski möguleiki að fá 2 sykurpúða. Heila Herjólfshöll og þá er vetraraðstaða orðin góð fyrir meistaraflokkana og yngri flokkana, yngri flokkarnir sem eru börnin okkar. Finnst stundum eins og umræðan um gervigras eða Herjólfshöll sé alltaf í rætt í samhengi við meistaraflokkana. Það er nefnilega þannig að tilgangur félagsins er að vinna að eflingu íþrótta- og æskulýðsstarfssemi í Vestmannaeyjum (2.gr. í lögum ÍBV). Í ljósi þess að félagið leggur kappkost í að tyggja iðkendum sínum góða aðstöðu þá er það ljóst í mínum augum að stækkun Herjólfshallarinnar sé öllum til heilla.
Sé það vilji félagsins og félagsmanna að gervigras sé leiðin núna þá er það bara þannig. Þannig virkar lýðræðið. Ég mun borða þennan sykurpúða með bestu lyst.
Hvernig svo sem fer þá þarf að bæta vetraraðstöðuna. Ég persónulega er tilbúin að horfa á og þefa af sykurpúðanum í smá stund lengur og svo borða tvo.
Óskar Jósúason.

