Íslandsmót golfklúbba í flokki +50 ára fór fram víða um landið dagana 20.-22 ágúst. En Íslandsmót golfklúbba – eldri kylfinga 1. deild og 2. kvenna var haldið hér í Vestmannaeyjum hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. Frábært veður var í Eyjum þessa daga og gekk mótið vel að sögn Hallgríms Steinssonar mótstjóra. Í mótstjórn voru Hallgrímur Steinsson, Þórður Ingason, Styrmir Jóhannsson, Harpa Gísladóttir og Thelma Sveinsdóttir. Dómari: Þórður Ingason.
Sveit Golfklúbbs Vestmannaeyja var með sveit í 2. deildinni en gerðu sér lítið fyrir og unnu keppnina, þær munu því spila í 1. deild næsta sumar. En sveitina skipa þær Katrín Harðardóttir, Hrönn Harðardóttir, Alda Harðardóttir, Guðmunda Bjarnadóttir, Elsa Valgeirsdóttir og er Unnur Sigmarsdóttir liðstjóri.
Úrslit helgarinnar: 1.deild
- Golfklúbburinn Keilir
- Golfklúbbur Reykjavíkur
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
Úrslit helgarinnar: 2.deild
- Golfklúbbur Vestmannaeyja
- Golfklúbbur Kiðjabergs
- Golfklúbburinn Öndverðarness
- sæti í 2. deild – Golfklúbbur Vestmannaeyja
2. sæti í 2. deild – Golfklúbbur Kiðjaberg
3. sæti í 2. deild – Golfklúbburinn Öndverðarness
- sæti í 1. deild – Golfklúbburinn Keilir
2. sæti í 1. deild – Golfklúbbur Reykjavíkur
3. sæti í 1. deild – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar