Sunnudagsnóttin rólegri en laugardagsnóttin

Dagskrá þjóðhátíðar 2022 lauk sem kunnugt er nú í nótt

Mikill mannfjöldi var á svæðinu og náði fjöldinn hámarki undir miðnættið í gærkvöldi þegar brekkusöngur fór fram í Herjólfsdal segir í fréttatilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum.

Síðasti sólarhringur hátíðarinnar var ívið rólegri hjá lögreglu en sólarhringurinn á undan sem sést best á því að  einungis einn var vistaður í fangageymslu sl. nótt. Ein líkamsárás var skráð hjá lögreglu og átta fíkniefnamál. Í öllum fíknefnamálunum var um minniháttar mál að ræða. Tvö minniháttar slys eru skráð þar sem viðkomandi hafði skrikað fótur og fallið í jörðina. Um minniháttar meiðsli var að ræða í báðum tilfellum.

Herjólfur hóf að flytja þjóðhátíðargesti upp á land kl. 02:00 í nótt og mun sigla þétt milli lands og Eyja í allan dag og fram á nótt.

Lögregla hvetur ökumenn sem fyrr til að gæta vel að því að aka ekki af stað fyrr en allt áfengi er farið úr blóði.

Lögreglumenn verða með áfengismæla á ferð bæði í Vestmannaeyjum og í Landeyjahöfn í dag og eru ökumenn hvattir til að nýta sér það áður en ekið er af stað út í umferðina.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is