02.05.2020
Nú er sumarið komið og þá fer golfið á fullt. Tígull heyrði í Karli Haraldssyni golfkennara.
Golf er mikið fjölskyldusport og hefur verið mikil gróska undanfarin ár hérna í Eyjum.
Mikill aukning hefur verið í hjá yngstu kynslóðinni og mun það vonandi skila okkur fleiri afrekskylfingum næstkomandi ár.
Golfklúbbur Vestmannaeyja hefur staðið vel á málum í kringum barna-og unglingastarf undanfarin ár sem hefur skilað mögum afrekskylfingum og kylfingum sem hafa fengið styrk til háskólanáms í Ameríku.
Golf er stundað allt árið í Vestmannaeyjum. Með bættri aðstöðu undanfarina ára hefur okkur tekist að gera þetta að heilsársíþrótt. Krakkar og unglingar á aldrinum 6-19 ára æfa 2-4 sinnum í viku allt árið. Bæði inni og úti. Einnig er golfklúbburinn með akademíu fyrir krakka á grunn- og framhaldskólastigi eins og handboltinn og fótboltinn og hefur það gengið mjög vel.
Yfir sumartímann æfa krakkarnir 4 sinnum í viku og er þeim skipt upp í aldurshópa og eru æfingarnar í 1 ½ klst. Við byrjum sumaræfingarnar um leið og skóla lýkur. Árgjald er 27.000 og þurfa krakkarnir ekki að eiga neinar kylfur eða neitt til að stunda golfíþróttina. Með mér í kennslu er Thelma Sveinsdóttir leiðbeinandi.
Æfingar hefjast stax hjá krökkunum eftir samkomubann og reynum við að skipta æfingunum upp í fleiri hópa vegan COVID. Mér hlakkar mikið til að hitta krakkana og ég veit að þau eru farin að hlakka mikið til að fara út á völl að leika sér í vorblíðunni.
Nánari upplýsingar um æfingar eru á facebook, leita að: Unglingastarf GV eða í síma 698-1475
Einnig mun ég bjóða upp á almenna kennslu, byrjendanámskeið og margt fleira núna strax þegar samkomubanni lýkur. Golf er fyrir alla og er mjög hentugt fjölskyldusport í Vestmannaeyjum. Þar sem við erum með einn fallegasta og besta golfvöll landsins.
Nánari upplýsingar um námskeið sem boði verða eru inn á :
https://www.facebook.com/haraldsson.karl eða haraldsson.karl@gmail.com eða í síma 698-1475