Hráefni:
250 g sykur
150 g smjör
3 egg
1/2 tsk lyftiduft
230 g hveiti
150 g suðusúkkulaði
vel af kanilsykri
50 g suðusúkkulaði til skreytinga
ca. 2 epli eða 1 stórt (ekki köld)
Aðferð:
Sykri og smjöri hrært saman. Eggjum bætt við. Þurrefnum blandað saman í sér skál og svo bætt við smjörblönduna.
Súkkulaði saxað niður. Epli skorið í þunnar sneiðar.
Deginu smurt eins og þunnt og hægt er í botn formsins. (Hringlaga form 25-30 cm). Eplunum dreift yfir deigið. Kanilsykri stráð vel yfir – meira en þú heldur að þurfi.
Saxaða súkkulaðinu dreift yfir eplin og kanilsykrinum og svo restinu af deginu smurt yfir, best er að nota borðhníf til þess.
Bakast við 140° við blástur í 45-60 mín eða þangað til að bakan er orðin brún að ofan.
Gott að bera fram með rjóma eða vanilluís.