Þriðjudagur 5. desember 2023

Styrkurinn er ætlaður til barna og unglingastarfs og er skilyrtur við að æfingagjöld hækki ekki á árinu 2021

03.12.2020

Bæjarráð tók fyrir erindi formanns og framkvæmdastjóra ÍBV-íþróttafélags um viðbótarfjárveitingu frá Vestmannaeyjabæ vegna tekjufalls félagsins af völdum Covid-19 sem nemur tugum milljóna króna.

Um er að ræða beiðni um 20 m.kr. fjárstyrk fyrir árið 2020.

Vegna samkomutakmarkana stjórnvalda hefur ÍBV orðið af bróðurparti tekna sinna á þessu ári. Félagið reiðir sig m.a. á tekjur af Þjóðhátíð og öðrum viðburðum, en flestir þessara viðburða hafa fallið niður. Ráðist hefur verið í hagræðingaraðgerðir, en ljóst er að ef halda úti óbreyttu íþróttastarfi barna og ungmenna þarf að koma til viðbótarfjármagn. Öðrum kosti gæti komið til þess að félagið neyðist til að hækka æfingagjöld umtalsvert.

Bæjarráð samþykkir að veita ÍBV-íþróttafélagi 20 m.kr. fjárstyrk á árinu 2020 vegna tekjufalls félagsins af áhrifum hertra samkomutakmarkana. Styrkurinn er ætlaður til barna og unglingastarfs og er skilyrtur við að æfingagjöld hækki ekki á árinu 2021.

Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að gera samning við ÍBV um fjárstyrkinn og skilyrði fyrir honum.

Bæjarráð felur jafnframt fjármálastjóra að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun 2020 þar sem gert er ráð fyrir þessari fjárveitingu.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is