Laugardagur 17. október 2026

Stuttur karfatúr og síðan sumarstopp

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Eyjum á mánudaginn.

Á heimsíðu svn er rætt við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra um veiðiferðina:

“Aflinn var mest ýsa en síðan var þetta einnig ufsi, karfi og þorskur. Veitt var á Pétursey að undanskildum tveimur nóttum þegar leitað var að ufsa á Reynisdýpi og þar fékkst reyndar dálítill ufsi og einnig karfi. Á Pétursey var fínasta ýsuveiði og ýsan sem fékkst var stór og góð. Það var þokkalegasta veður í túrnum og segja má að hann hafi bara gengið vel,” sagði Ragnar Waage.

Bergey mun halda til veiða á ný á föstudaginn og þá er ráðgerður stuttur karfatúr. Áformað er að landa á ný næstkomandi mánudag og síðan verður tekið sumarstopp.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search