Laugardagur 17. október 2026

Stuttir túrar hjá Vestmannaeyjaskipunum

Það sem af er þessum mánuði hefur veiði verið góð hjá Vestmannaeyjatogurunum Vesatmannaey og Bergey. Veiðiferðirnar hafa verið stuttar eða tveir til þrír sólarhringar og hefur yfirleitt verið komið með fullfermi að landi. Oftast hefur verið landað í Grindavík en einnig í Þorlákshöfn og í Eyjum. Bæði skipin lönduðu fullfermi í gær, Vestmannaey í Grindavík og Bergey í Eyjum. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var ánægður með aflabrögðin upp á síðkastið. “Það hefur gengið vel að veiða að undanförnu. Túrarnir hafa verið stuttir en þessi túr var þó þrír og hálfur sólarhringur, enda veðrið ekki sérstaklega skemmtilegt. Það voru 20 – 25 metrar í eina tvo sólarhringa og töluverð leiðindi. Nú er einnig farið að líða á kvótaárið og þá er ekki unnt að veiða hvaða tegund sem er. Að þessu sinni hófum við veiðar í Háfadýpi, síðan var haldið á Broadway og þaðan í Grjótið vestan við Garðskaga. Túrinn var síðan kláraður við Eldeyna,” sagði Egill Guðni.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, var einnig ánægður með aflabrögðin að undanförnu. “Það hefur gengið vel að fiska allan þennan mánuð. Veiðiferðirnar hafa verið stutter og við höfum landað í Grindavík þar til nú að landað er í heimahöfn. Það var heldur leiðinlegt veður í þessum túr enda tók hann um þrjá og hálfan sólarhring. Aflinn núna var mest langa og síðan var þetta bland af ýmsu. Við hófum veiðar á Pétursey í kaldafýlu. Þaðan var haldið á Ingólfshöfða þar sem var nudd. Síðan var tekið eitt hol í Reynisdýpinu og loks klárað á Vík og Pétursey. Það er verið að eltast við ákveðnar tegundir eins og ávallt þarf að gera í lok kvótaárs,” sagði Ragnar Waage.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search