Umhverfisdagar eru nú í gangi hjá Vestmannaeyjabæ og standa þeir til 10. júlí
Á morgun milli klukkan 08:00 og 12:00 verður strandhreinsun í fjörukantinum við gofvöllinn, ætlar hópur starfsmanna frá bænum og Sea Life Trust að reyna að ná netum og járni úr fjörunni.
Það verða hanskar og ruslapokar fyrir alla þá sem geta lagt verkefninu lið.
Margar hendur gera létt verk, hjálpumst að við að fegra eyjuna okkar.

