https://www.facebook.com/ibvhandbolti/videos/165684998200741/
Peyjarnir okkar unnu í kvöld stórbrotinn endurkomusigur, 24-22 gegn bikarmeisturum síðasta árs í FH.
Eftir erfiðan fyrri hálfleik stóðu leikar að honum loknum 7-13, þar sem FH-ingar voru yfir.
Strákarnir komu til baka á ótrúlegan hátt og breyttu stöðunni á 11 mínutum úr 10-17 í 19-18. Eftir þetta höfðum við undirtökin og sigruðum að lokum 24-22.
Þetta þýðir að við höfum tryggt okkur farseðilinn í Final 4 í Höllinni. Undanúrslitin fara fram 5.mars en úrslitaleikurinn þann 7.mars.
Við viljum þakka okkar stórkostlegu stuðningsmönnum fyrir ómetanlegan stuðning í dag og hlökkum til að fara með ykkur öllum í Höllina í mars.
ÁFRAM ÍBV
Alltaf, alls staðar!!