21.09.2020
ÍBV tekur í dag á móti liði Þórs í 17.umferð Lengjudeildarinnar. Fyrir leik dagsins eru liðin jöfn að stigum í deildinni eða með 26 stig. úr alls 16 leikjum.
Leikurinn hefst á Hásteinsvelli klukkan 16.30 í dag. Hann verður einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Ekki er ljóst hvort áhorfendur verði leyfðir á Hásteinsvelli í dag. En bann var sett við áhorfendum á fótboltaleikum um helgina vegna kórónuveirufaraldursins. Staðan verður endurmetin síðar í dag í samráði við yfirvöld og framhaldið ákveðið og tilkynnt eins fljótt og mögulegt verður, segir á vef KSÍ.