Miðvikudagur 14. október 2026

Stórmót í Frisbee um helgina

Hanna Þórðardóttir, Markús Öhman, Sigurð Viðarsson og Bjarki Sigurðsson standa fyrir Ultimate Puffin móti um helgina.

Ultimate Puffin er Frisbee mót sem haldið er um helgina í Herjólfshöll. Þessi íþrótt hefur verið stunduð síðan 1968, hún hófst í háskólaumhverfinu í Bandaríkjunum og var síðan fljót að dreifa úr sér um allan heim. Í dag eru haldin heimsmeistaramót sem einmitt er í ár í Kaliforníu. Alls hafa um fjörutíu lönd tekið þátt þar. „Til að útskýra hvernig Frisby virkar þá er völlurinn líkt og í Amerískum fótbolta og reglurnar í líkingu við körfubolta“ segir Sigurð í samtali við Tígul. „Skóbúnaður eru takkaskór þegar spilað er á grasi, handboltaskór þegar spilað er á innanhúsvelli og engir skór á sandvelli. Það eru í raun þrjár útgáfur af þessari íþrótt, þar sem það eru færri til dæmis inn á vellinum þegar spilað er á strandvelli.“

Hanna hefur staðið fyrir tveimur mótum á Íslandi. Árið 2012 í Hafnarfirði og 2019 í Hveragerði. En hún er búsett í Svíþjóð.

Um helgina mæta til leiks sextíu og þrír keppendur frá nítján löndum. Keppni helgarinnar er ekki alveg með venjulegu sniði. Venjulega skrá lið sig til leiks sem eru vön að spila saman. En um helgina er dregið í lið og verða alls sjö lið, með einstaklingum sem hafa jafnvel aldrei spilað saman áður. Liðin eru blönduð í kynjum.

Spilað er föstudag og laugardag  frá 10:30 til klukkan 18:00.

Eftir klukkan 18 gefst kostur á að lofa fólki að prufa í íþróttina, svo ef þú hefur áhuga þá endilega mæta og horfa og svo prufa.

Heimasíða mótsins er hér ef þið hafið áhuga á að kynna ykkur þetta enn fremur. 

Hér er svo hægt að lesa reglurnar:

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search