Stórleikir um helgina

Tekist hefur að staðfesta leiktíma á úrslitaleikjum Olísdeildar karla og kvenna sem fram fara í Vestmannaeyjum á morgun, laugardag. Verðurútlit hefur oft verið betra og hugsanlegt siglt verði frá Þorlákshöfn og aftur til baka um kvöldið klukkan 18.

Fyrsti úrslitaleikur ÍBV og Hauka um Íslandsmeistaratitil karla hefst klukkan 13.

Þriðja viðureign ÍBV og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki hefst klukkan 15.30.

Valur hefur tvo vinninga og verður Íslandsmeistari með sigri í leiknum. Ef ÍBV vinnur mætast liðin í fjórða sinn í Origohöllinni á þriðjudagskvöld og loks í fimmta og allra síðasta sinn laugardaginn 27. maí.

Rúmur tími er gefinn á milli leikjanna á laugardaginn ef svo fer að framlengja verði fyrri leikinn.

Önnur viðureign ÍBV og Hauka um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki verður á Ásvöllum á þriðjudaginn og sú þriðja föstudaginn 26. maí. Mánudagur 29. maí og miðvikudagur 31. maí hafa verið bókaðir fyrir fjórðu og fimmtu viðureignir gerist þörf á þeim.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is