Sunnudagur 15. nóvember 2026

Stóri plokkdagurinn 2021 er á morgun laugardag

Stóri plokkdagurinn verður haldin á degi umhverfissins á morgun laugardaginn 24. apríl

Vestmannaeyjabær hvetur einstaklinga, vini, fjölskyldur, vinnustaði og félagasamtök til að taka þátt í þessu verkefni sem verður yfir helgina.

Áhaldahúsið er lokað en það verður sett pokarúlla fyrir utan húsið þannig að fólk geti sótt sér poka. Ef þið tínið mikið af rusli og viljið ekki burðast með það er hægt að skilja eftir poka í vegkanti á áberandi stöðum og mun starfsfólk frá Vestmannaeyjabæ fara á mánudaginn og hirða það upp. Einnig er hægt að láta vita hvar pokar voru skildir eftir í síma 488 2500 á mánudaginn.

Fólk er hvatt til að dreifa sér um eyjuna, jafnvel að plokka í hverfinu sínu, en hlíðar Eldfells og vestari hluti nýja hraunsins eru þó sérlega aðkallandi.

Á Facebook síðu hópsins Eyjaplokk er einnig hægt að setja inn skilaboð um hvaða svæði þið ætlið að plokka og birta myndir af góðum verkum.
Eyjaplokk / Poki af rusli

Innblástur og hugmyndir fyrir stóra plokkdaginn!

PLOKKUM Í SAMKOMUBANNI

  • Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
  • Frábært fyrir umhverfið
  • Öðrum góð fyrirmynd
  • Hver á sínum hraða og tíma

Klæðum okkur eftir veðri, notum hanska, virðum samkomubannið og gætum að 2 metra reglunni.

Eigið gott plokk!

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search