Á fundi framkvæmda- og hafarráði þann áttunda mars fóru starfsmenn ráðsins yfir helstu atriði í lögum um hringrásarhagkerfi sem samþykkt voru á Alþingi í júní 2021, en meginmarkmið með þeim er að stuðla að aukinni flokkun og að sá borgar sem hendir.
Ljóst er að framkvæmd laganna sem taka munu gildi 1.janúar 2023 mun verða töluvert íþyngjandi fyrir íbúa og atvinnustarfsemi í Vestmannaeyjum
Ráðið felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að gera átak í fræðslu varðandi flokkun úrgangs og vinna tillögur til ráðsins varðandi framkvæmd laga um hringrásarhagkerfi.
Ráðið leggur áherslu á að vinnu við nýja aðstöðu við Eldfellsveg verði hraðað til að mæta nýjum kröfum.
Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2023
Samkvæmt breytingum á lögum um meðhöndlun úrgangs, sem samþykkt voru í júlí árið 2021 og ætlað er að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis, verður skylt að safna við heimili lífrænum eldhúsúrgangi, plasti, og pappír og pappa. Þá verður einnig skylt að safna textíl, málmum og gleri í nærumhverfi íbúa, hvort sem er við heimili eða í grenndarstöðvum. Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2023 sem verða stór tímamót í umhverfismálum á Íslandi. Með þessu verða miklar breytingar á sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu og um land allt, en þetta styður enn frekar við hringrásarhagkerfið.

