Stór tímamót hjá LAXEY – Vinnsluhús starfrækt og fyrsta slátrun lokið
Nóvember 2023, fyrstu hrognin koma í hús.
Nóvember 2024, fyrsti fiskur fluttur í áframeldi.
Nóvember 2025, fyrsta slátrun. Allt samkvæmt áætlun.
Stærsti lykiláfangi í uppbyggingu LAXEY: fyrsta slátrun.
Á 23 mánuðum frá því fyrstu hrogn komu í hús höfum við alið 4-5 kg lax. Allt í takt við áætlun LAXEY sem kynnt var fjárfestum fyrir þremur árum. Þessi árangur er til vitnis um hæfni og eldmóð starfsfólks og samstarfsaðila okkar.
Við höfum byggt þetta skref fyrir skref, í takt við okkar samfélag í Vestmannaeyjum og stuðning þess.
Næstu skref er að auka framleiðslu stigvaxandi og á næsta ári verður framleiðslan um 5000 tonn.






