Nú rétt uppúr klukkan 10 og aftur um klukkan 10:20 fundu Vestmannaeyingar vel fyrir jarðskjálfta sem gekk yfir suðurland.
Fyrstu mælingar Veðurstofunnar gefa til kynna að skjálftinn hafi verið af stærðinni 5,3 og átt upptök sín 2,9 kílómetra suð-suðvestur af Keili.
Enn á þó eftir að yfirfara þær mælingar. Hér fyrir neðan er skjáskot frá vedur.is frá mælingum
Við uppfærum fréttina um leið og við fáum betri mælingar og upplýsingar frá Veðurstofu Íslands.


